Hlutverk, teymi og teymisstjórar

Hvað eigendur, stjórnendur, notendur með lesaðgang, teymisstjórar og starfsmenn geta gert, og hvernig þú setur upp teymi.

Allir í EasyHours hafa hlutverk sem ræður því hvað þeir geta séð og hverju þeir geta breytt. Að auki geturðu gert einhvern að teymisstjóra svo hann samþykki tíma eða frí teymisins.

Hlutverkin

Hlutverk Hvað viðkomandi getur gert
Eigandi Allt, þar á meðal áskrift og greiðslur. Aðeins eigandinn getur gert einhvern að stjórnanda. Það er einn eigandi í hverju fyrirtæki.
Stjórnandi Stjórnað starfsmönnum, teymum, verkum, stillingum og tímum og fríi allra. Ekki áskrift og greiðslum, og ekki öðrum stjórnendum.
Lesaðgangur Séð tíma, frí og skýrslur fyrirtækisins, en engu breytt. Einhver með lesaðgang skráir ekki eigin tíma. Hentar til dæmis bókara.
Starfsmaður Skráð eigin tíma, sótt um frí og séð eigið vaktaplan.

Teymisstjóri er starfsmaður sem hefur líka heimildir fyrir eitt teymi, til dæmis til að samþykkja tíma þess. Sjá hér fyrir neðan.

Breyttu hlutverki einhvers

Í vefforritinu

  1. Opnaðu Starfsmenn og smelltu á viðkomandi.
  2. Á flipanum Prófíll smellirðu á Breyta á spjaldinu Upplýsingar.
  3. Veldu hlutverk undir Hlutverk í fyrirtækinu og smelltu á Vista breytingar.

Í appinu

  1. Pikkaðu á Meira → Starfsmenn og á viðkomandi.
  2. Undir Hlutverk velurðu Meðlimur (starfsmaður), Lesaðgangur eða Stjórnandi.
  • Aðeins eigandinn getur gert einhvern að stjórnanda eða tekið það hlutverk af honum.
  • Sá sem fær lesaðgang þarf að hafa skráð sig inn a.m.k. einu sinni. Fólk sem notar bara stimpilklukkuna (kiosk) getur ekki fengið lesaðgang.
  • Til að gefa stjórnanda lesaðgang þarftu fyrst að gera hann að starfsmanni.

Settu upp teymi

Teymi flokka fólk, til dæmis eftir vinnustað eða deild. Eigendur og stjórnendur setja þau upp, og teymisstjórar sem hafa heimild til að breyta meðlimum bæta fólki við og fjarlægja það. Sami einstaklingur getur verið í mörgum teymum.

Í vefforritinu

  1. Opnaðu Fyrirtæki → Teymi.
  2. Smelltu á Nýtt teymi, gefðu teyminu heiti og smelltu á Stofna teymi.
  3. Á flipanum fyrir meðlimi velurðu einhvern undir Bæta við meðlimi og smellir á Bæta við. Endurtaktu fyrir alla í teyminu.
  4. Á flipanum fyrir teymisstjóra smellirðu á Bæta við stjórnanda og velur viðkomandi. Hakað er við allar heimildir: taktu hakið af því sem viðkomandi á ekki að gera og smelltu á Bæta við stjórnanda.
Flipi teymisstjóra í teyminu Ræstingar, með hnappnum til að bæta við teymisstjóra og Lauru Bennett sem teymisstjóra með allar heimildir.

Flipi teymisstjóra, með Bæta við stjórnanda.

Í appinu

  1. Pikkaðu á Meira → Teymi → Nýtt teymi, sláðu inn heitið og pikkaðu á Stofna.
  2. Í teyminu pikkarðu á Bæta við starfsfólki, velur fólk og pikkar á Bæta við.
  3. Pikkaðu á Bæta við teymisstjóra, veldu viðkomandi og heimildirnar og pikkaðu á Bæta við.

Hvað teymisstjóri getur gert

Breyta heimildum Lauru Bennett í teyminu Ræstingar: Breyta meðlimum, Samþykkja tímaskýrslur, Samþykkja fjarveru og Stjórna verkum, allt hakað.
  • Samþykkja tímaskýrslur: séð og samþykkt tíma meðlima teymisins. Sjá Samþykktu tíma.
  • Samþykkja fjarveru: afgreitt fríbeiðnir teymisins. Sjá Samþykktu fríbeiðnir eða hafnaðu þeim.
  • Breyta meðlimum: bætt fólki í teymið og fjarlægt það, í vefforritinu undir Teymi eða í appinu undir Meira → Teymi, eins og í skrefunum hér að ofan.
  • Stjórna verkum: stofnað verk fyrir teymið og breytt verkum sem tilheyra eingöngu teymum hans: heiti, lýsingu, dagsetningum og athugasemdum, og verkþáttum (bætt við, breytt eða fært í safn). Aðeins stjórnendur geta breytt verkum sem eru sameiginleg með öðru teymi, breytt kostnaðaráætlun og viðskiptavini, úthlutað verkþáttum og fært verk í safn eða eytt þeim.

Teymisstjórar samþykkja aldrei eigin tíma eða frí og geta ekki leiðrétt tíma meðlima: það geta aðeins eigendur og stjórnendur. Til að breyta heimildum teymisstjóra smellirðu á blýantinn við nafnið, breytir hökunum og smellir á Vista.

Vantar þig enn aðstoð? Senda þjónustuveri póst