Stilltu orlof og tegundir fjarveru

Veldu hvernig starfsmenn fá árlega orlofsdaga og hvaða tegundir fjarveru þeir geta sótt um.

Eigendur og stjórnendur stilla fjarveru í vefforritinu undir Stillingar → Fjarvera og frídagar.

Kveiktu á fjarverubeiðnum

  1. Á flipanum Fjarverubeiðnir kveikirðu á Kveikja á fjarverubeiðnum. Hér velurðu líka hvort fjarvera er talin í dögum eða klukkustundum og hvaða klukkustundir teljast til frídags.
  2. Smelltu á Vista breytingar.

Þú getur líka kveikt á fjarverubeiðnum í appinu: Meira → Fyrirtækisstillingar → Eiginleikar → Fjarvera og frí. Allt annað á þessari síðu er stillt í vefforritinu.

Hversu marga orlofsdaga hver og einn fær

Opnaðu síðu starfsmannsins undir Starfsmenn og veldu flipann Prófíll. Árlegir orlofsdagar viðkomandi eru undir Ráðningarkjör. Sjá Stilltu vinnutíma.

Bættu orlofsdögum sjálfkrafa við

  1. Opnaðu flipann Ávinnsla orlofs.
  2. Undir Bæta við orlofsdögum velurðu hvernig dögum er bætt við:
    • Einu sinni á ári: allir dagar ársins í upphafi orlofsársins.
    • Í hverjum mánuði: tólfti hluti daganna í hverjum mánuði.
    • Handvirkt: engu er bætt við; þú stillir stöðuna sjálf(ur).
  3. Ef dögum er bætt við sjálfkrafa velurðu mánuðinn undir Orlofsárið hefst í og hvað verður um ónotaða daga í lok árs: þeir eru fluttir yfir, upp að hámarki, eða felldir niður, og hvenær yfirfærðir dagar falla úr gildi.
  4. Smelltu á Vista breytingar.
Stillingar fyrir ávinnslu orlofs: orlofsdögum bætt við einu sinni á ári, orlofsárið hefst í janúar, ónotaðir dagar fluttir yfir, yfirfærðir dagar falla aldrei úr gildi.

Á Íslandi er orlofsárið frá 1. maí til 30. apríl og lágmarksorlof er 24 virkir dagar, eða 2 dagar fyrir hvern unninn mánuð. Ef þið fylgið því velurðu Í hverjum mánuði og maí.

Tegundir fjarveru

Þegar kveikt er á fjarverubeiðnum geta starfsmenn sótt um Orlof og Veikindi, og Uppsafnað frí ef fyrirtækið notar það. Fyrirtækið fær líka þær tegundir fjarveru sem eru algengar í ykkar landi, til dæmis launalaust leyfi eða fjarveru vegna veikinda barns. Þær eru annaðhvort launaðar eða launalausar og dragast ekki frá neinni stöðu. Sendu okkur tölvupóst ef þú þarft að bæta við eða breyta tegund fjarveru.

Vantar þig enn aðstoð? Senda þjónustuveri póst